map
Type of resources
Categories
Topics
Keywords
Contact for the resource
Provided by
Formats
-
Loftmyndasjáin er vefsjá með sögulegum loftmyndum og er byggð á loftmyndasafni Landmælinga Íslands sem nær rúmlega 80 ár aftur í tímann. Vefsjáin var hönnuð hjá Landmælingum Íslands í samstarfi við Jarðvísindastofnun HÍ og Fjarkönnunarmiðstöð HÍ. Loftmyndunum sem finna má í vefsjánni (https://www.lmi.is/is/landupplysingar/fjarkonnun/loftmyndasafn) hefur verið safnað úr flugvél, þær skannaðar og breytt í kort. Vefsjáin gefur því fólki færi á að stökkva upp í nokkurs konar ferðatímavél yfir Íslandi og skoða þær breytingar sem orðið hafa á landslagi, t.d. af völdum eldgosa, hopunar jökla eða útbreiðslu plantna, og í þéttbýli síðustu 80 árin. Loftmyndasjáin nýtist við kennslu, rannsóknir og sögu auk þess að svala almennri forvitni. Aðgangur að vefsjánni er öllum opinn og án gjaldtöku.
-
IS: Umbrotasjá sýnir landupplýsingar sem tengjast jarðhræringum t.d. á Reykjanesskaga. Myndirnar og gögnin sem er að finna í Umbrotasjá voru útbúin af hópi sérfræðinga frá Landmælingum Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Háskóla Íslands og Veðurstofu Íslands. Myndirnar voru unnar á hraða samkvæmt neyðarástandi og gerðar aðgengilegar á Umbrotasjá fyrir vísindasamfélagið og ákvörðunaraðila aðeins nokkrum klukkustundum eftir að mælingum lauk. Niðurstöður þessarar vinnu hjálpa til við að útbúa hættumat vegna eldgossins og stjórnun aðgengis að svæðinu. EN: The Volcano Viewer (Icelandic: Umbrotasjá) shows geographical data in connection with the current volcanic unrest on Reykjanes peninsula, SW Iceland. The images and data in Volcano Viewer were created by a group of specialists at the National Land Survey of Iceland (Landmælingar Íslands), the Icelandic Institute of Natural History (Náttúrufræðistofnun Íslands), the University of Iceland (Háskóli Íslands), and the Icelandic Meterological Office (Veðurstofa Íslands). The images were created in near real-time in rapid emergency mode as the events unfold and made available to the scientific community and decision-makers just hours after the data are acquired. The results of this project aid in the creation of volcanic hazard maps and control access to the area.
-
IS: Í Kortasjá Landmælinga Íslands er meðal annars hægt að velja kort með örnefnum, loftmyndir, atlaskort eða AMS kort. Þá er þar að finna sveitarfélagakort með upplýsingum um stærð sveitarfélaga og íbúarfjölda, þekju með CORINE landflokkun sem sýnir til dæmis mólendi eða mýrlendi og gamlar ljósmyndir danskra landmælingamanna sem og gamlar bæjarteikningar. EN: Kortasjá from National Land Survey of Iceland is a simple and reactive map where the user can view placenames, protected areas, Corine classification, roads, height points, buildings, boundaries of municipalities, and more.
-
IS: Í korstjánni er hægt að skoða hæðarlíkan af Íslandi og hlaða því niður. en: The Digital Elevation Model (DEM) Map from Landmælingar Íslands allows to view and download the DEM, find its derivative like slope and orientation and much more. ÍslandsDEM refers to "Digital Elevation Model (DEM) of Iceland" in English. A DEM is a digital representation of the Earth's surface topography, typically represented as a grid of elevation values. It provides information about the height or elevation of the terrain across a specific area, allowing for the creation of detailed three-dimensional representations of the landscape. DEM data is widely used in various applications, including geographic information systems (GIS), environmental modeling, land use planning, engineering design, and natural resource management. It can be used to analyze terrain characteristics, calculate slope and aspect, identify drainage patterns, model water flow, and assess landscape suitability for various purposes.
-
[IS] Í Rammasjá er hægt að skoða gögn sem tengjast áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, þ.e.a.s. Rammaáætlun. [EN] The Master Plan for Nature Protection and Energy Utilization Map
-
The Conservation of Arctic Flora and Fauna (CAFF) is the biodiversity working group of the Arctic Council. The CAFF Kortasjá represents data from CAFF and from their GeoCatalog (https://geo.abds.is/) More info on their website https://www.caff.is/
-
Vefsjá Fjarskiptastofu er hugsuð til upplýsinga fyrir alla sem vilja kynna sér stöðu og þróun fjarskiptauppbyggingar á Íslandi hvort sem um er að ræða tengingar heimila og fyrirtækja við ljósleiðara eða uppbyggingu farneta á landsvísu. Meðal þess sem skoða má í vefsjánni er: - Fjarskiptaaðgengi staðfanga (heimila og fyrirtækja) um fastanet þar sem þekja sýnir staðföng landsins í punktaformi. - Fjarskiptaaðgengi um farnet þar sem sjá má þekju sem sýnir gæði farnetssambands á staðföngum landsins. - Útbreiðsla 2G, 3G, 4G og 5G sem sýnir áætlaða útbreiðslu farnetsmerkis allra fyrirtækja. - Samband á stofnvegum þar sem sjá má alla vegakafla þar sem samband næst frá einhverjum markaðsaðila. - Farnetsmælingagögn úr mælingum á 4G. Hægt að skoða alla mælipunkta á kortinu. - Þá eru í fyrsta sinn birtir mælikvarðar sem Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hefur sett fyrir uppbyggingu ljósleiðara í byggð og uppbygging farneta á stofnvegum landsins. Fjarskiptamælikvarði: Þéttbýlisstaðir og byggðarkjarnar landsins sýndir sem flákar á korti. Þeir sem náð hafa 80% ljósleiðaraútbreiðslu eru litaðir grænir og þeir sem ekki hafa náð því markmiði eru litaðir á litaskala eftir stöðu. Fjarskiptamælikvarði: Sýnir stofnvegi landsins sem línur á korti. Þeir kaflar stofnvega sem ekki eru dekkaðir af 10 Mb/s farneti eru litaðir rauðir. Þeir kaflar sem bæst hafa við vegna samnýtingar eru litaðir í einkennandi lit.
-
[IS] Uppspretta upplýsinga um vatnamál á Íslandi. Markmiðið með vefsjánni er að veita aðgengi að upplýsingum um vatn og stjórn vatnamála á einfaldan, aðgengilegan og skilvirkan hátt. Meðal upplýsinga sem hægt er að nálgast er til dæmis ástand vatns, umhverfismarkmið, álag og aðgerðir til að bæta ástandið sé þess þörf. Upplýsingarnar er hægt að nálgast ýmist í gegnum yfirlitssíður og/eða gagnvirk kort. Undir hlekknum Upplýsingar, hér til hliðar, er að finna útskýringar á helstu hugtökum sem notuð eru við stjórn vatnamála á Íslandi. Undir hlekknum Tenglar, hér til hliðar, er einnig að finna notendahandbók sem inniheldur nánari leiðbeiningar og gagnlegar upplýsingar um notkun vefsjárinnar. Fleiri upplýsingar: https://vatnavefsja.vedur.is/ [EN] A source of information about water in Iceland. The goal is to provide easy and fast access to data in different formats. Here you can find what the status of water and the water framework directive is (environmental condition, environmental goals, measures, pressures etc.) and get out data in different formats (fact sheets and maps). Under the Information section you will find explanations of the most important terms used in water management in Iceland. Under the links section you will find a user manual with further instructions and examples on how to use the application. More information: https://vatnavefsja.vedur.is/
-
IS: Kortið sýnir staðsetngar þar sem strendur hafa verið hreinsaðar í tengslum við átaksverkefni á vegum Umhverfisstofnunnar. Um verkefnið: Strandhreinsun Íslands er 5 ára átak í hreinsun strandlengju Íslands af plasti og öðrum úrgangi. Framgang átaksins má sjá á kortinu. Áhugasamir aðilar, s.s. almenningur, fyrirtæki, félagasamtök o.fl geta tekið þátt í verkefninu með því að taka frá strandbúta á kortinu og hreinsa. Niðurstöður hreinsana verða sýnilegar á kortinu. Átakið byggir á aðgerð 17 í aðgerðaáætlun stjórnvalda í plastmálefnum, Úr viðjum plastsins. Hreinleiki sjávar er Íslandi afar mikilvægur og strandhreinsanir eiga þátt í að halda hafinu hreinu. Strandlengjan er um 5000 km að lengd og er nauðsynlegt að framkvæma hreinsun hennar með kerfisbundnum hætti. Umhverfisstofnun úthlutar styrkjum til verkefna sem felast í hreinsun strandlengju Íslands árlega næstu 3 ár til lögaðila, s.s. félagasamtök eða áhugamannafélag. EN: The Beach Cleaning Map in Iceland allows users to register for beach cleaning activities. Data is compiled on a map, providing real-time updates on cleaning status and collected debris. Managed by The Environment Agency of Iceland, it facilitates community engagement and environmental stewardship for coastal conservation efforts.
-
Kortasjá fyrir póstnúmer á Íslandi frá Byggðastofnun. Landmælingar Íslands halda utana um vefsjánna. Byggðastofnun starfrækir aðra kortasjá þar sem önnur og mun fleiri gögn eru birt: https://thjonustukort.is/