Landmælingar Íslands
Type of resources
Available actions
Topics
Keywords
Contact for the resource
Provided by
Years
Formats
Service types
Scale
-
Uppruni: Gögnin komu frá Samsýn ehf og voru unnin upp úr loftmyndum teknum 17.7.2010 úr 2.700 m.y.s. Stafræn myndataka með 4 böndum, þ.e. lit og innrauðu. Stærð svæðis 160 km2. Myndir teknar af Blom. Myndavél, Vexcel UltraCam D. Afhent gögn: Uppréttar myndir: Myndir á óþjöppuðu TIFF formi. Stærð myndeininga 0,2 m. Klipptar í blöð að stærð 2 x 2 km. Nafngiftir og staðsetning blaða gengur upp í 2 km reitakerfi LMÍ. Hnitakerfi er ISN93, lambert kortvörpun. Afhent 2 sett af myndum: - Hefðbundnar 3ja banda litmyndir – litajafnaðar - 4 banda myndir með rauðu, grænu, bláu og innrauðu bandi Útgáfudagsetningin 09.12.2010 er tekin af lýsingunni sem fylgdi gögnunum til LMÍ. LMÍ gerði nytjaleyfissamningur um gögn Samsýnar ehf úr loftmyndum af Eyjafjallajökli og Markarfljóti, í umboði nokkurra stofnanna: - Vegagerðin - Landgræðslan - Veðurstofa Íslands - Umhverfisstofnun - Náttúrufræðistofnun. Gögnin voru unnin úr loftmyndum, annars vegar úr háflugi yfir Eyjafjallajökli og hluta Mýrdalsjökuls og hins vegar úr lágflugi yfir Markarfljóti. Ástæðan fyrir því að farið var út í þetta verkefni var eldgosið sem átti sér stað sama ár (2010)í Fimmvörðuhálsi. Tilgangurinn var að greina breytingarnar sem eldgosið orsakaði. Verkefnið var tvískipt: Annars vegar var um að ræða þetta myndkort og hins vegar hæðarlíkan. Sjá hér í Landupplýsingagáttinni undir "Markarfljót - hæðarlíkan".
-
Hæðarlínur og landlíkan unnin upp úr loftmyndum af Markarfljóti. Vektorgögn: Gögnin voru unnin af Samsýn ehf og voru unnin upp úr myndkortinu af sama svæði. Geymd í ArcGIS File Geodatabase. Gögnin eru flokkuð skv. staðli IST120 frá árinu 2007. Hnitakerfi er ISN93, lambert kortvörpun. 3 Fitjuklasar afhentir: - Hæðarlínur með 1 m. millibili - Hornpunktar þríhyrningalíkans af landi - Brotlínur landlíkans (þrívíðar) Útgáfudagsetningin 09.12.2010 er tekin af lýsingunni sem fylgdi gögnunum til LMÍ. LMÍ gerði nytjaleyfissamningur um gögn Samsýnar ehf úr loftmyndum af Eyjafjallajökli og Markarfljóti, í umboði nokkurra stofnanna: - Vegagerðin - Landgræðslan - Veðurstofa Íslands - Umhverfisstofnun - Náttúrufræðistofnun. Gögnin voru unnin úr loftmyndum, annars vegar úr háflugi yfir Eyjafjallajökli og hluta Mýrdalsjökuls og hins vegar úr lágflugi yfir Markarfljóti. Ástæðan fyrir því að farið var út í þetta verkefni var eldgosið sem átti sér stað sama ár (2010)í Fimmvörðuhálsi. Tilgangurinn var að greina breytingarnar sem eldgosið orsakaði. Verkefnið var tvískipt: Annars vegar var um að ræða þetta hæðarlíkan og hins vegar myndkort. Sjá lýsigögnin hér í Landupplýsingagáttinni undir "Markarfljót - myndkort".
-
Uppréttar loftmyndir, unnar úr loftmyndum teknum 16.7.2010 úr 2700 m.y.s. Stafræn myndataka með 4 böndum, þ.e. lit og innrauðu. Stærð svæðis er 570 km2. Myndir á óþjöppuðu Tiff-formi. Stærð myndeininga 0,4 m. Klipptar í blöð að stærð 5x5 km. Hnitakerfi er ISN93 kortvörpun.
-
Myndirnar voru teknar af Swedesurvey á tímabilinu 19.ágúst-09.september 2000. Viðmiðunarflöturinn er sporvalan WGS84 og nákvæmnin er +/- 2dm (e. relative accuracy). Um er að ræða 58 myndir sem voru teknar árið 2000 en færðar inn í kerfi LMÍ 14.06.2001. Myndirnar eru í mælikvörðunum 1:13.000 / 1:20.000 / 1:36.000. Ein yfirlitsmynd fylgir sem sýnir allt svæðið. Myndirnar eru svart/hvítar. Hæðarlíkan (og hæðarlínur) var unnið af Swedesurvey, út frá myndunum og er það einnig aðgengilegt hjá LMÍ. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá stofnuninni: lmi@lmi.is. LMÍ keyptu fullan afnotarétt á myndirnar og gögnin og má stofnunin dreifa þeim. Séu myndirnar og/eða gögnin notuð þarf að geta uppruna þeirra, þ.e. að þau séu upprunalega frá Swedesurvey (höfundaréttur) en í eigu LMÍ. Um er að ræða svo kallað "pilot project" sem ákveðið var að framkvæma sem hluta af undirbúningi áður en hafist var handa við vinnuna á fyrir landsþekjandi gagnasafn LMÍ, IS 50V. Á þessum tím voru einungis til gömul gögn (er fyrir utan DMA kortasvæðið). Kannað var á afmörkuðu svæði hver kostnaður gæti orðið fyrir gögn yfir allt landið og hvaða gæðakröfur ætti að gera.
-
Gögn unnin af Samsýn ehf. Hæðarlínur og landlíkan unnin upp úr loftmyndum af Eyjafjallajökli. Myndir teknar 16.7.2010 í 5.700 m.y.s. 4 banda litmyndir með hefðbundum 3 litaböndum ásamt innrauðu bandi. Hæðarlíkan afhent sem grid með 9 m möskvastærð. Hæðarlínur með 5 m. bili. Vektorgögn flokkuð skv. IST120:2007. Einnig afhent samhliða upprétt myndkort í lit og innrauðu með stærð myndeininga upp á 0,4 m.Gögn í ISN93 viðmiðun, lambert kortvörpun.
-
IS: Í korstjánni er hægt að skoða hæðarlíkan af Íslandi og hlaða því niður. en: The Digital Elevation Model (DEM) Map from Landmælingar Íslands allows to view and download the DEM, find its derivative like slope and orientation and much more. ÍslandsDEM refers to "Digital Elevation Model (DEM) of Iceland" in English. A DEM is a digital representation of the Earth's surface topography, typically represented as a grid of elevation values. It provides information about the height or elevation of the terrain across a specific area, allowing for the creation of detailed three-dimensional representations of the landscape. DEM data is widely used in various applications, including geographic information systems (GIS), environmental modeling, land use planning, engineering design, and natural resource management. It can be used to analyze terrain characteristics, calculate slope and aspect, identify drainage patterns, model water flow, and assess landscape suitability for various purposes.
-
Nú hafa Landmælingar Íslands útbúið vefkort með því að staðsetja og klippa saman hin svokölluðu Herforingjaráðskort. Eftirfarandi lýsing á Herforingjaráðskortum er tekin af vef Landsbókasafns: Á síðasta áratug 19. aldar varð dönskum yfirvöldum ljóst að þau kort sem til voru af Íslandi stæðust ekki þær kröfur sem gera þyrfti í samfélagi þess tíma. Bestu kort af Íslandi sem buðust voru í stórum dráttum byggð á strandmælingum danska sjóhersins sem fram fóru á árunum 1801-1818 annars vegar og hins vegar á kortum Björns Gunnlaugssonar sem byggð voru á fyrrnefndum strandmælingum og eigin mælingum Björns á árunum 1831-1843. Á fjárlögum 1899 voru veittar 5000 krónur og skyldi hefja nýjar þríhyrninga- og strandmælingar á Reykjanesi. Árið 1900 var gefin út í Danmörku tilskipun um að sendur skyldi leiðangur til Íslands til að mæla hér grunnlínu og hnattstöðu. Síðan var ætlunin að mæla þríhyrninganet út frá nýju grunnlínunni. Hingað voru sendir danskir liðsforingjar og sumarið 1900 var unnin ýmis undirbúningsvinna. Árið 1902 höfðu fjárveitingar verið auknar svo að rétt þótti að hefjast handa. Byrjað var á Hornafirði og mælt vestur ströndina og um lágsveitir Suðurlands en uppsveitum og hálendi frestað. Verkinu var svo haldið áfram tvö næstu árin en féll niður 1905 vegna fjárskorts og annarra anna hjá Landmælingadeild danska herforingjaráðsins (Generalstabens topografiske Afdeling) er tókst verkið á hendur. Eftir eins árs bið var þráðurinn tekinn upp að nýju enda bættist nú við fjárstyrkur úr ríkissjóði Dana. Á árunum 1906-1914 var unnið öll sumur, nema 1909, þegar ekkert var aðhafst. Var þá lokið byggðamælingum sunnanlands og mælt um Vesturland, norður og austur um Húnaflóa. Árangurinn var 117 kortblöð af þriðjungi landsins, suður- og vesturhluta, í mælikvarða 1:50.000 (auk nokkurra sérkorta af afmörkuðum svæðum). Þau eru gjarnan nefnd herforingjaráðskortin í höfuðið á þeim sem stóðu fyrir gerð þeirra.
-
[IS] WMS þjónusta fyrir drónamyndir frá Landmælingum Íslands. [EN] WMS service to serve drone imagery from the national land survey of Iceland.
-
Þann 16. mars 2011 gáfu Landmælingar Íslands út í fyrsta sinn sameiginlegt hæðarkerfi fyrir Ísland. Kerfið er kallað Landshæðarkerfi Íslands og er viðmiðunin ISH2004. Tilkoma sameiginlegs hæðarkerfis markaði stór tímamót í sögu landmælinga á Íslandi. Á sama hátt og viðmiðunin ISN93 skapaði grundvöll fyrir alla til að vinna í sama hnitakerfi mun ISH2004 skapa grundvöll fyrir alla til að vinna í sama hæðarkerfi. Eitt samræmt hæðarkerfi er mikilvægt fyrir ýmsar framkvæmdir s.s. vegagerð og jarðgangnagerð og á ýmsum sviðum umhverfisvöktunar, skipulags og áætlanagerðar. Auk þess munu gögnin nýtast við rannsóknir á jarðskorpuhreyfingum eða breytingum á yfirborði sjávar. Mælingar á Landshæðarkerfinu eru standa ennþá yfir og frá fyrstu útgáfu þess árið 2011 hafa bæst við eftirfarandi línur hallamælilínur. • Flókalundur-Bolungavík • Reykjavík-Keflavík • Endurmæling á Suðurlandi vegna jarðskjálftans 2008 • Hellisheiði • Reykjanesbraut-Grindavík • Þjóðvegur 1-Akranes • Kjölur Niðurstöður nýrra mælinga verður bætt inn í þetta gagnasett um leið og þær liggja fyrir.
-
Vefþjónn fyrir landfræðileg gögn Landmælinga Íslands. Hér eru nýjustu útgáfur gagna Landmælinga Íslands aðgengilegar. Vefþjónnin er byggður á opnum staðli OGC og hægt er að nálgast gögnin á vefþjóninum í gegnum ýmsar tegundir þjónusta, s.s. WFS, WMS, WMTS.
Arctic SDI catalogue